Mál Málanna

Hvað er eiginlega málið? Hvað brennur heitast á þjóðinni í dag? Um hvað er verið að tala í vinnunni, í bílnum, við matarborðið, í heita pottinum og í fjölskylduboðum. Auðun Georg Ólafsson tekur saman það sem skiptir okkur máli og fer yfir mikilvægustu mál dagsins.

Listen on:

Episodes

Jan 19, 2026

7 min

Á skákborði stórveldanna.“ Guðmundur Hálfdanarson, prófessor í sagnfræði, rýnir í Mál málanna þar sem Donald Trump hótar að hætta að skuldbinda sig friði og hersveitir NATO eiga þá væntanlega að mætast á Norðurslóðum. Erum við að bakka inn í kalda stríðið þar sem smáþjóðir eins og Ísland eru bara skiptimynt?

Jan 19, 2026

7 min

Jan 16, 2026

12 min

„Við erum svolítið á taugum,“ segir Inga Dóra Guðmundsdóttir í Nuuk, þar sem íbúar safna nú neyðarbirgðum vegna hótana Donalds Trump um yfirtöku á Grænlandi.
Í föstudagsuppgjöri Máls málanna gerum við upp dramatíska viku þar sem Grænland og Trump bar á góma, afsögn á Alþingi vegna vændismáls og varað var við læknisfræði ChatGPT. Undir lok vikunnar snérist allt um handbolta enda framundan fyrsti leikur strákanna okkar á EM.
Viðmælendur: Inga Dóra Guðmundsdóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Ólafur Þór Ævarsson, Jón Sigurðsson og Pétur Halldórsson.
Umsjón: Auðun Georg Ólafsson. Framleiðsla: Sýn.

Jan 16, 2026

12 min

Jan 15, 2026

10 min

Á meðan íbúar Grænlands safna neyðarbirgðum kallar þingmaður þeirra á danska þinginu eftir að landið fái sjálfstæðari rödd á alþjóðavettvangi. Í þætti dagsins ræðum við við Ingu Dóru Guðmundsdóttur, sem búsett er á Grænlandi. Hún lýsir óttanum hjá íbúum á meðan danskar, franskar og þýskar könnunarhersveitir lenda til að verja fullveldi eyjunnar gegn bandamanni okkar í vestri.

Jan 15, 2026

10 min

Jan 14, 2026

10 min

„Ál, bensen og hormónatruflandi efni.“ Una Emilsdóttir, sérnámslæknir í umhverfislækningum, varar við því að daglega notkun hreinlætisvara sé ekki eins saklaus og hún virðist. Í þætti dagsins ræðum við um muninn á svitalyktareyði (deodorant) og svitahamlandi efnum (antiperspirant). Hvers vegna berst úði í lungun og af hverju er varasamt að nota svitavörn eftir rakstur? Erum við að fórna heilsunni fyrir lyktina af „suðrænum stormi“?

Jan 14, 2026

10 min

Jan 13, 2026

7 min

„Gervigreindin skáldaði vísindagrein eftir mig,“ segir Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir í þætti dagsins. Við könnum flókið ástar-haturs samband okkar við gervigreind í heilbrigðiskerfinu. Getur ChatGPT verið lífbjörg sem finnur svör sem læknar misstu af, eða erum við að týna okkur í óáreiðanlegum upplýsingaspuna? Við ræðum um kosti tækninnar, mikilvægi gagnrýnnar hugsunar og hvers vegna við höfum enn þörf fyrir reynslu lækna þegar kemur að heilsu okkar.

Jan 13, 2026

7 min

Jan 12, 2026

8 min

„Þetta er algjör kúvending,“ segir Inga Sæland, nýr barna- og menntamálaráðherra. Hún ætlar ekki lengur að vera hrópandinn í eyðimörkinni heldur raungera breytingar í kerfi sem hún segir að hafi brugðist börnum og kennurum. Í þætti dagsins ræðum við um hvers vegna 47% drengja eru ólæsir, af hverju Inga vill afnema skóla án aðgreiningar í núverandi mynd og hvort „finnska leiðin“ sé það sem íslenska skólakerfið þarfnast.

Jan 12, 2026

8 min

Jan 9, 2026

11 min

Þrír bjórar.Foreldrar kaupa áfengi fyrir unglinga í þeirri trú að það sé skárra heima fyrir til að fylgjast með neyslunni.Kidda Svarfdal, ritstjóri Hún.is og stjórnandi hlaðvarpsins Fullorðins hefur verið edrú í 16 ár og spyr einfaldlega,af hverju ættum við að kenna börnum okkar að nota eitur?Í þættinum er rætt um unglingadrykkju, áfengismenningu á Íslandi, nýlegar rannsóknir og hvað gerist þegar kerfið bregst.

Jan 9, 2026

11 min

Jan 8, 2026

8 min

Ríkisstjórnin og borgarstjóri kynntu í fyrra áform um 4.000 nýjar íbúðir í Úlfarsárdal - á svæði sem skipulagt var fyrir 562 íbúðir. Í öllu póstnúmeri 113 (Úlfarsárdal og Grafarholti) eru nú 3.723 íbúðir. Hverfið verður ansi þétt og þröngt með fáum bílastæðum að mati Björns Gunnars Steinþórssonar, íbúa í hverfinu sem sett hefur af stað undirskriftalista til að mótmæla þessum áformum.

Jan 8, 2026

8 min

Jan 7, 2026

9 min

Heiða Njóla Guðbrandsdóttir, forstöðumaður hjá Icelandair, útskýrir hvers vegna félagið greiðir milljarða í kolefnisgjöld til Evrópusambandsins sem skekkir verulega samkeppnisstöðuna á flugleiðinni yfir Atlandshafið.
Í þætti dagsins spyrjum við hvort þetta sé sanngjarnt. Og hvert fer peningurinn?

Jan 7, 2026

9 min

Jan 6, 2026

7 min

Rithöfundurinn Helen Hafgnýr Cova býr á Íslandi en á fjölskyldu í Venesúela. Þegar Bandaríkin réðust inn í heimaland hennar og handtóku Maduro forseta þá hafði hún strax samband við fjölskyldu sína og vini.
Í þættinum í dag spyrjum við: hvenær fórum við að tala um mannréttindi í Venesúela? Munið þið þegar 1.592 hælisleitendur þaðan komu til Íslands - og við gáfum 98% þeirra synjun?

Jan 6, 2026

7 min

Copyright 2025 All rights reserved.

Podcast Powered By Podbean

Version: 20241125