Mál Málanna

Hvað er eiginlega málið? Hvað brennur heitast á þjóðinni í dag? Um hvað er verið að tala í vinnunni, í bílnum, við matarborðið, í heita pottinum og í fjölskylduboðum. Auðun Georg Ólafsson tekur saman það sem skiptir okkur máli og fer yfir mikilvægustu mál dagsins.

Listen on:

Episodes

Mar 18, 2026

8 min

Stýrivextir fóru í 7,5 prósent í morgun og rök Seðlabankans eru þau að tölurnar hafi hreinlega breyst svo mikið að það hafi ekki verið annað í stöðunni. En á meðan forysta bankans talar um „lausbeislaðar verðbólguvæntingar“ þá situr launafólk eftir með hærri reikninga og svikin loforð.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri kynna röksemdir vaxtahækkunar. Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandinu sparar hvergi stóru orðin og sakar ráðamenn um „hvítlygi“. Íslendingar hafa búið við sjö prósent vexti að meðaltali í heilan aldarfjórðung.
Fáðu samhengið í Máli málanna á undir 15 mínútum.

Mar 18, 2026

8 min

Mar 17, 2026

10 min

Í dag kynnumst við raunveruleika þeirra fjögur þúsund Íslendinga sem glíma við eftirstöðvar Covid-sýkingar. Við heyrum sögu Gunnars Önnu Svanbergssonar, sérfræðings í sjúkraþjálfun sem varð öryrki eftir að hafa smitast um jólin 2020. Við ræðum líffræðina bak við þreytuna, skort á skilningi í kerfinu og hvers vegna alþjóðlegur vitundardagur Long Covid skiptir máli.

Mar 17, 2026

10 min

Mar 16, 2026

10 min

Nýjasta útspil Donalds Trump Bandaríkjaforseta, sem krefst þess að bandamenn taki við öryggisgæslu í Hormuz-sundi eða greiði fyrir verndina, er mál málanna. Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur, rýnir stöðuna.Fáðu samhengið í máli dagsins á undir korteri..

Mar 16, 2026

10 min

Mar 13, 2026

28 min

Stærstu viðskiptatíðindi seinni ára á fjölmiðlamarkaði litu dagsins ljós á fjölmiðlamarkaði. Hinn þrautreyndi fjölmiðlamaður, Pálmi Guðmundsson rýnir í það mál. Patrekur Jaime, fjölmiðlastjarna og áhrifavaldur, er gjörsamlega búinn að fá nóg af holunum í malbikinu og lofar að kjósa hvern þann sem lagar það. Björk Úlfarsdóttir hjá Colas útskýrir hvers vegna göturnar eru eins og þær eru. Jón Karl Ólafsson rýndi í óvenju lágt gengi Icelandair og þá skoðum við hvernig Evrópuumræðan birtist okkur með þeim Birgi Guðmundssyni, Brynjari Níelssyni og Berglindi Guðmundsdóttur.Fáðu samhengið í stærsu mál vikunnar á 20 mínútum.

Mar 13, 2026

28 min

Mar 12, 2026

15 min


Í Máli málanna í dag ræðum við við Jón Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, sem varar við því að sagan sé endurtekin í Evrópumálum. Hann lýsir því hvernig ríkisstjórnin nú notar sömu setningarnar og 2009 til að „friða fólk,“ á meðan ESB gerir engar málamiðlanir um grunnreglur sínar. Hvers vegna stöðvuðust viðræður um sjávarútvegsmál á sínum tíma?Fáðu samhengið í máli dagsins á um 15 mínútum.
 

Mar 12, 2026

15 min

Mar 11, 2026

12 min

Í Máil málanna í dag ræðum við skrítinn ráðahag varðandi efnaskiptaaðgerðir Íslendinga sem fluttir eru í stórum stíl til Svíþjóðar þar sem aðgerðin er framkvæmd, oft af íslenskum lækni fyrir sænskt fyrirtæki.Diljá Mist Einarsdóttir þingkona fer yfir sláandi tölur úr heilbrigðisráðuneytinu og við heyrum í læknum hjá Klíníkinni sem telja sig geta nýst kerfinu miklu betur. Er pólitísk hugmyndafræði að koma í veg fyrir skynsamlega forgangsröðun?Samhengið í máli dagsins á tæpum 15 mínútum.

Mar 11, 2026

12 min

Mar 10, 2026

13 min

Í Máli málanna í dag ræðum við sögulega lágt gengi Icelandair í Kauphöllinni. Jón Karl Ólafsson, fyrrverandi forstjóri, varar við því að félagið sé orðið svo ódýrt að það borgi sig hreinlega að kaupa það og leysa það upp. Er fjandsamleg yfirtaka yfirvofandi?Samhengið í máli dagsins á undir 15 mínútum.

Mar 10, 2026

13 min

Mar 9, 2026

9 min

Mál málanna er umræðan um þingsályktunartillöguna um þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB sem verður lögð fyrir Alþingi í dag. Tómas Möller úr Evrópuhreyfingunni og Erna Bjarnadóttir frá Heimssýn takast á um auðlindir og fullveldi. Einnig heyrum við í Már Wolfgang Mixa dósent um hvort ESB-aðild muni raunverulega lækka húsnæðisvexti eða hvort íslenski bankamarkaðurinn sé einfaldlega of lítill til að laða að erlenda samkeppni.Samhengið í máli dagsins á undir 15 mínútum.

Mar 9, 2026

9 min

Mar 6, 2026

40 min

Fjölmargir minntust Davíðs Odssonar í vikunni. Við heyrum brot úr viðtali við Davíð úr Reykjavík síðdegis frá árinu 2016 og ræðum við Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formann Sjálfstæðisflokksins. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, svarar fyrir um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna um ESB og Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur metur stöðuna í Íran. Deilt er um framkvæmd og kostnað vegna nýja Landspítalans sem beðið er eftir.

Mar 6, 2026

40 min

Mar 5, 2026

8 min

Í Mál málanna í dag heyrum við aftur í Andra Ottesen í Kúveit, en ástandið þar hefur versnað snögglega frá því fyrr í vikunni. Hann lýsir því hvernig Íranir nota ódýra dróna til að herja á dýr varnarkerfi og varað er við því að birgðir af varnarflaugum gætu klárast á næstunni.

Mar 5, 2026

8 min

Copyright 2025 All rights reserved.

Podcast Powered By Podbean

Version: 20241125