Mál Málanna
Hvað er eiginlega málið? Hvað brennur heitast á þjóðinni í dag? Um hvað er verið að tala í vinnunni, í bílnum, við matarborðið, í heita pottinum og í fjölskylduboðum. Auðun Georg Ólafsson tekur saman það sem skiptir okkur máli og fer yfir mikilvægustu mál dagsins.
Listen on:
Episodes

Mar 4, 2026
Mar 4, 2026
12 min
Rætt við Sigurð Sigurðsson, byggingarverkfræðing, um það sem hann kallar þúsund milljarða högg á ríkissjóð vegna Nýja Landspítalans. Af hverju hefur Landspítalinn verið á teikniborðinu í tvo áratugi á meðan aðrar stórbyggingar rísa á ógnarhraða?Samhengið í máli dagsins á tæpum 15 mínútum.

Mar 3, 2026
Mar 3, 2026
17 min
Í Máil málanna í dag fáum við innsýn í hvernig það er að búa í Barein og Kúveit á meðan stríðið í Miðausturlöndum breiðist út. Guðlaug Sigfúsdóttir í Barein segist aldrei hafa átt von á því að búa við sprengjuárásir í friðsælu landi og Andri Ottesen er með ferðatöskuna klára ef hann þarf að flýja Kúveit með fjölskyldu sína.

Mar 2, 2026
Mar 2, 2026
15 min
Rætt við Leo Karenarson Amiri frá Íran sem er búsettur hér á landi en Karen Stephensen Halldórsdóttir hefur myndað mjög sterk tengsl við hann og fjölskyldu hans. Þau segja 85% Írana fagna innrás Bandaríkjanna og Ísrael.

Feb 25, 2026
Feb 25, 2026
13 min
Rætt við Guðmund Fertram Sigurjónsson, stofnanda Kerecis, um risagreiðsluna sem skilar sér í ríkissjóð í haust. Eru fleiri vörur og fyrirtæki á Ísafirði sem skila fleiri 40 milljörðum og hvernig er umhverfið á Íslandi til verðmætasköpunar?

Feb 24, 2026
Feb 24, 2026
17 min
Í dag ræðum við um hrópandi ábyrgðarleysi í barnaverndarmálum. Hver ber ábyrgð þegar vistheimili ríkisins breytast í vettvang ofbeldis?Mummi “í Götusmiðjunni” Týr Þórarinsson, sakar kerfið um að hafa rústað úrræðum sem virkuðu og leyft mönnum að þvo hendur sínar af ofbeldi fortíðar.Inga Sæland, barnamálaráðherra, boðar aðgerðir.Fáðu samhengið í máli málanna.

Feb 23, 2026
Feb 23, 2026
13 min
Mál málanna í dag er Úkraína. Á morgun eru fjögur ár liðin frá ólöglegri innrás Rússa í Úkraínu. Algjör kyrrstaða virðist komin í átökin. Albert Jónsson, alþjóðastjórnmálafræðingur og fyrrverandi sendiherra í Rússlandi og Jón Ólafsson prófessor við HÍ fóru yfir á Sprengisandi þetta mannskæða stríð sem virðist engan enda ætla að taka.
Samhengið í máli dagsins á tæpum 15 mínútum.

Feb 20, 2026
Feb 20, 2026
16 min
Í vikuyfirliti Máls málanna fer Auðun Georg á um 15 mínútum yfir samhengið á bak við stærstu fréttir vikunnar.
Bakkakotsmálið: Ólöf Ásta Farestveit núverandi forstjóri Barna- og fjölskyldustofu um verklag barnaverndar nú á dögum. Athygli vakti í vikunni að Bragi Guðbrandsson, fyrrverandi forstjóri Barnaverndarstofu, lýsti því í viðtali við Kastljós Ríkissjónvarpsins að málefni Bakkakots rötuðu ekki á sitt borð meðan hann stýrði stofnuninni.
Heilbrigðiskerfið í lamasessi: Við heyrum í Hafdísi Hönnu Ægisdóttur en aldraður faðir hennar hefur mátt hírast á spítalanum síðan í október því ekkert hjúkrunarrými er til fyrir hann og Steinunni Þórðardóttur, formanni Læknafélagsins um bráðamóttöku sem er orðin að geymslu fyrir aldraða. Á meðan rísa glæsihallir ríkisbanka og Alþingis. Alma Möller, heilbrigðisráðherra, viðurkennir að við séum „áratugum of sein“ að byggja upp innviði.
Leikskólagjöldin: Líf Magneudóttir, oddviti VG í borginni, kynnti nýja Reykjavíkurmódelið svokallaða. Leikskólagjöld gætu lækkað um nokkur þúsund krónur á mánuði hjá ákveðnum barnafjölskyldum í Reykjavík á meðan aðrir foreldrar gætu þurft að greiða umtalsvert meira.

Feb 19, 2026
Feb 19, 2026
11 min
Í Mál málanna í dag ræðum við um hættulega loftmengun í Reykjavík sem hefur neytt fólk til að leita á bráðamóttöku. Við heyrum í Björgvin Jóni Bjarnasyni, forstjóra Hreinsitækni, um af hverju rykbinding er „feluleikur“ og Magneu Gná Jóhannsdóttur, borgarfulltrúa, sem vill að borgin kaupi sína eigin ryksugubíla. Er verið að nota svifrykið sem vopn gegn einkabílnum eða vantar hreinlega forgangsröðun í þrifin? Samhengið í máli dagsins á tæpum 15 mínútum.

Feb 18, 2026
Feb 18, 2026
13 min
Soffía Ámundadóttir, verkefnisstjóri námssamfélaga á Menntavísindasviði HÍ, ræðir um skólaforðun á Íslandi. Talið er að allt að þúsund grunnskólabörn mæti hreinlega ekki í skólann. Hvernig þarf skólakerfið að breytast svo hægt sé að grípa börn sem passa ekki inn í hefðbundið mót skólastarfsins.Fáðu samhengið í Máli málanna á um 10 mínútum.

Feb 17, 2026
Feb 17, 2026
11 min
Við ræðum við Kristján Leó Guðmundsson, tölvunarfræðing og einn af stofnendum nýja íslenska samfélagsmiðilsins Slapp. Köfum ofan í hvernig rafræn skilríki útrýma bottum og tröllum, hvers vegna miðillinn er auglýsingalaus og af hverju „samfélagsmiðlaþreyta“ er að breyta því hvernig við tengjumst á netinu.Fáðu samhengið í máli dagsins á tæpum 12 mínútum.
