Mál Málanna
Hvað er eiginlega málið? Hvað brennur heitast á þjóðinni í dag? Um hvað er verið að tala í vinnunni, í bílnum, við matarborðið, í heita pottinum og í fjölskylduboðum. Auðun Georg Ólafsson tekur saman það sem skiptir okkur máli og fer yfir mikilvægustu mál dagsins.
Listen on:
Episodes

Feb 16, 2026
Feb 16, 2026
13 min
Aldraðir á biðlista: “Áratugum á eftir áætlun.”Hafdís Hanna Ægisdóttir og átakanleg saga föður hennar á níræðisaldri sem hefur þurft að bíða á bráðamóttöku Landspítalans eftir hjúkrunarrými síðan í október. Við heyrum líka í Ölmu Möller heilbrigðisráðherra sem viðurkennir að uppbygging kerfisins sé áratugum á eftir áætlun.Fáðu samhengið í máli dagsins á um 10 mínútum.

Feb 13, 2026
Feb 13, 2026
20 min
Heitustu málin í vikunniÍ Máli málanna í dag rýnum við í stærstu fréttir vikunnar 9.–13. febrúar. Við förum yfir starfsóánægju á Bifröst sem endaði með afsögn rektors, hættulegt ástand gatna í Reykjavík og raddfalsanir með aðstoð gervigreindar. Vandræðaleg afsökunarbeiðni norsks skíðagarps vakti mikla athygli en stærstu málin voru auðvitað tengd bráðamóttökunni á Landspítalanum og gríðarlegt landrof í Reynisfjöru. Samhengið í öllu því helsta sem dundi á okkur í vikunni á rúmu korteri.

Feb 12, 2026
Feb 12, 2026
12 min
30 millimetra slysagildrur
Ólafur Guðmundsson, umferðaröryggissérfræðingur, ræðir um hræðilegt ástand gatna í Reykjavík. Hvers vegna eru rásir í malbikinu orðnar tvöfalt dýpri en hættumörk erlendis segja til um? Við berum saman öryggi á flugvöllum og þjóðvegum, ræðum hvers vegna malbikið „skríður“ og spyrjum hvers vegna það vantar skýr viðmið í vegalög um hvenær vegur telst hreinlega ónýtur. Samhengið í máli dagsins á um 15 mínútum.

Feb 11, 2026
Feb 11, 2026
10 min
Eldey á tíma: Verður næsta gos neðansjávar?
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur rýnir í skjálftahrinuna við Eldey. Hvers vegna er jarðskorpan þarna eins og kalt Toffee eða mjúkt smjör? Við förum yfir líkurnar á gosi í náinni framtíð, ógnina við Keflavíkurflugvöll vegna hugsanlegs öskufalls og hvers vegna Reykjanesskaginn virðist vera að losa spennu í öllum áttum. Samhengið í máli dagsins á tæpum 10 mínútum.

Feb 10, 2026
Feb 10, 2026
9 min
Hvað ef internetið á Íslandi hrynur?
Í Mál málanna í dag ræðum við við Tryggva Farestveit, framkvæmdastjóra Photon, um brothætta stafræna innviði Íslands. Hvers vegna myndu flestir vefmiðlar liggja niðri ef sambandið við útlönd rofnar? Við ræðum stafrænt fullveldi, hvers vegna við hýsum mikilvæg gögn hjá Amazon og Cloudflare í stað þess að nýta íslensk gagnaver, og hverja við þurfum að ná í ef allt fer í lás.

Feb 9, 2026
Feb 9, 2026
10 min
Krísan á BifröstNjörður Sigurjónsson, prófessor við háskólann á Bifröst og Selma Klara Gunnarsdóttir, hagsmunafulltrúi nemenda, lýsa því hvernig stjórnunarhættir rektors hafa leitt til algjörs trúnaðarbrests. Við ræðum þöggunarmenningu, vísanir í siðanefndir og kröfuna um að leiðtogar sýni auðmýkt og stígi til hliðar.Samhengið í máli dagsins á rúmum 10 mínútum.

Feb 6, 2026
Feb 6, 2026
19 min
Bakkakot, Landspítali og krísa í konungshöllinni.Í vikuuppgjöri Máls málanna rýnum við í hneykslið í Bakkakoti og viðbrögð ráðamanna við því. Ungmenni réðust á töframann í Garðabæ og lögregla hefur tekið upp nýstárlegar forvarnir með því að spila tölvuleiki í Roblox. Við ræðum enn eitt neyðarástandið á Landspítala og heyrum af loforði forsætisráðherra um fyrstu skrefin til að afnema verðtryggingu. Í Noregi er vart rætt um annað en krísuna í konungshöllinni vegna samskipta Mette-Marit krónprinsessu við barnaníðinginn Jeffrey Epstein.Samhengi vikunnar á 20 mínútum

Feb 5, 2026
Feb 5, 2026
14 min
Bakkakotsmálið: Þegar kerfið sefur á verðinum.
Mál málanna í dag er mál drengjanna á Bakkakoti sem Kveikur dró fram í dagsljósið í vikunni. Inga Sæland barnamálaráðherra ræðir ábyrgð kerfisins og boðar ný úrræði á Gunnarsholti fyrir börn í vanda. Eygló Harðardóttir hjá ríkislögreglustjóra fer yfir þann mikla aðstöðumun sem ríkir í barnavernd á milli landshluta. Við rýnum einnig í reiði netverja og kröfuna um réttlæti.

Feb 4, 2026
Feb 4, 2026
11 min
Mitt DNA: Sannleikurinn, skömmin og púslið sem smellur.
Í Máil málanna í dag ræðum við við Benediktu Eik Eiríksdóttur sem nýlega stofnaði samtökin Mitt DNA – félag rangfeðraðra. Benedikta deilir magnaðri sögu af því að komast að hinu sanna um faðerni sitt eftir áratuga óvissu. Við ræðum lagalega hliðina á því að „affeðra“ sig og frelsandi kraftinn sem fylgir því þegar sannleikurinn kemur loksins í ljós.

Feb 3, 2026
Feb 3, 2026
15 min
Krísa í konungsríkinu og börn með fitulifur
Hneykslið í Noregi: Krónprinsessan Mette-Marit þarf að svara fyrir náin tölvupóstasamskipti við Jeffrey Epstein á sama tíma og sonur hennar er hnepptur í gæsluvarðhald. Við heyrum í Erlu Friðgeirsdóttur í Osló sem lýsir ástandinu.
Danir snúa baki við Bandaríkjunum: Ný könnun sýnir að 60% Dana líta nú á sinn nánasta bandamann sem andstæðing. Við ræðum um nýja appið sem Danir nota til að sniðganga bandarískar vörur.
Andlát í Vestmannaeyjum: Lögreglan rannsakar andlát á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum. Tveir starfsmenn eru í haldi vegna gruns um ranga lyfjagjöf.
Offita barna og fitulifur: Sláandi tölur frá Barnaspítala Hringsins sýna að börn niður í níu ára aldur eru komin á þyngdarstjórnunarlyf. Magnús Scheving ræðir forvarnir og samfélagslega ábyrgð.
Mál málanna – Samhengið í fréttunum á 15 mínútum.
