Mál Málanna

Hvað er eiginlega málið? Hvað brennur heitast á þjóðinni í dag? Um hvað er verið að tala í vinnunni, í bílnum, við matarborðið, í heita pottinum og í fjölskylduboðum. Auðun Georg Ólafsson tekur saman það sem skiptir okkur máli og fer yfir mikilvægustu mál dagsins.

Listen on:

Episodes

Feb 2, 2026

11 min

Árásin í Garðabæ, afnám verðtryggingar og Mette-Marit.
Mál málanna byrjar á hrikalegri frásögn Daníels Arnar sem varð fyrir tilefnislausri líkamsárás ungmenna í Garðabæ. Við rýnum í loforð Kristrúnar Frostadóttur um afnám verðtryggingar, fjöllum umníu ára börn sem eru komin á þyngdarstjórnunarlyf og tölvupósta Mette Marit krónprinsessu til Jeffrey Epstein sem skekur Noreg.Allt sem skiptir máli í dag á undir 15 mínútum.

Feb 2, 2026

11 min

Jan 30, 2026

11 min

Strákarnir okkar eru komnir í undanúrslit á EM. Mál málanna rýnir í frábæran árangur landsliðsins eftir sigurinn gegn Slóveníu. Við heyrum í Sigga Sveins um ótrúlegan karakter liðsins, Þorvald Flemming um stemninguna í Danmörku og þá staðreynd að Íslendingar stýra þremur af fjórum bestu liðum Evrópu. Að lokum segir Gaupi frá því hvernig það er að vera faðir landsliðsþjálfarans á stund sem þessari. Getum við farið alla leið?

Jan 30, 2026

11 min

Jan 29, 2026

12 min

Strákarnir okkar eru komnir í undanúrslit á EM. Mál málanna rýnir í frábæran árangur landsliðsins eftir sigurinn gegn Slóveníu. Við heyrum í Sigga Sveins um ótrúlegan karakter liðsins, Þorvald Flemming um stemninguna í Danmörku og þá staðreynd að Íslendingar stýra þremur af fjórum bestu liðum Evrópu. Að lokum segir Gaupi frá því hvernig það er að vera faðir landsliðsþjálfarans á stund sem þessari. Getum við farið alla leið?

Jan 29, 2026

12 min

Jan 28, 2026

9 min


Drengirnir á jaðrinum og kerfi meðaltalsins.Mál málanna rýnir í raunveruleika stráka í íslensku skólakerfi. Sigurður Árni Reynisson, kennari og fyrrverandi lögreglumaður, ræðir hvers vegna kerfið okkar er hannað fyrir „meðaltalið“ en bregst jaðartilvikunum. Við skoðum hvers vegna enginn vill kenna „erfiðu“ strákahópunum, af hverju stimplar og greiningar duga ekki án lausna og hvers vegna festan er það eina sem virkar þegar allt annað bregst.
 

Jan 28, 2026

9 min

Jan 27, 2026

9 min

Er “Íslandsbíllinn” biluð drusla?
Mál málanna í dag snýst um Tesla Model Y og sláandi niðurstöður. Af hverju falla 45% þessara bíla á fyrsta prófi í Danmörku? Björn Kristjánsson hjá FÍB fer yfir hvernig á þessu stendur.

Jan 27, 2026

9 min

Jan 26, 2026

9 min

Sjálfsvirðing eða sæng yfir höfuð?
Ísland stendur á krossgötum þar sem „forritun“ okkar nánasta bandamanns hefur snúist gegn okkur. Þorsteinn Pálsson og Steingrímur J. Sigfússon rýna í nýja heimsmynd þar sem Bandaríkin beita bandamenn sína efnahagslegum hernaði og ásælast fullveldi Grænlands. Við ræðum hvort Ísland eigi að leita skjóls í Evrópu, hvers vegna NATO-ríki æfa nú varnir gegn Bandaríkjunum og af hverju sjálfsvirðingin má aldrei víkja fyrir meðvirkni með ofbeldisseggjum.

Jan 26, 2026

9 min

Jan 23, 2026

15 min

Vikan var vægast sagt skrautleg. Trump ruglaði saman Íslandi og Grænlandi, hótaði tollum og hernámi en segist svo hafa landað „eilífðarsamkomulagi“ við NATO um auðlindir og loftvarnir. Á meðan berst HSÍ í bökkum þrátt fyrir gengi strákanna á EM og Viðskiptaráð bendir á að við borgum meira fyrir minni þjónustu hjá ríkinu.

Jan 23, 2026

15 min

Jan 22, 2026

8 min

„Vandamálið eru Bandaríkin: Traustið hrynur.“ Lars Christensen hagfræðingur skrifar harðan pistil um hvernig Bandaríkin hafa svikið alþjóðakerfið. Samúel Karl Ólason greinir ræðu Trump á alþjóðaefnahagsráðstefnunni í Davos.

Jan 22, 2026

8 min

Jan 21, 2026

8 min

Blóð, sviti og tvö stig. Ísland lagði Ungverjaland í dramatískum leik á EM í handbolta karla en missti Elvar Örn Jónsson úr leik vegna meiðsla. Henry Birgir Gunnarsson lýsir faglegum vinnubrögðum strákanna gegn andstæðingum og ófaglegum dómurum. Við hitum upp fyrir milliriðilinn í Malmö.

Jan 21, 2026

8 min

Jan 20, 2026

8 min

Barnalegt hrekkjusvín með kjarnorkukóða?Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir rýnir höfuðið á Bandaríkjaforseta eftir Nóbels-fýluna sem hann fór í og hótunina um yfirtöku á Grænlandi. Getum við notað aðferðir úr uppeldisfræði til að setja forsetanum mörk?

Jan 20, 2026

8 min

Copyright 2025 All rights reserved.

Podcast Powered By Podbean

Version: 20241125